Evrópumeistarar

Strákarnir í unglingalandsliðinu 18 ára og yngri urðu Evrópumeistarar í handknattleik í dag. Þeir unnu Þjóðverja 27-23 í úrslitaleiknum og í undanúrslitunum í gær unnu þeir Svía 34-33 í framlengdum leik. Frábær og glæsilegur árangur hjá strákunum og óskum við þeim innilega til hamingju.
Sérstakar hamingjuóskir til Haukastrákanna okkar, þeirra Ásgeirs Arnar, Andra Stefan og Þórðar. Við Haukafélagar erum verulega stolt af ykkur.