Þriðji leikur Hauka og HK verður leikinn í dag, mánudag og hefst hann kl. 19:30 í Schenkerhöllinni. Haukamenn eru komnir með bakið upp við vegg og þá er fínt að nota vegginn til þess að spyrna sér frá en þeir þurfa þín hjálp. Mætum öll í rauðu og styðjum Haukastrákana til sigurs því ekki viljum við láta HK sópa okkur út og fara strax í sumarfrí. Áfram Haukar!