Meistaraflokkur kvenna í handknattleik fær öflugan liðsstyrk

Elín Anna Baldursdóttir

Elín Anna Baldursdóttir

Elín Anna Baldursdóttir er gengin til liðs við Hauka og gerir hún tveggja ára samning við félagið. Elín Anna lék með FH á síðustu leiktíð, en hún hefur einnig leikið með ÍBV og uppeldisfélagi sínu HK. Elín Anna er mikill liðsstyrkur fyrir Hauka og henni er ætlað stórt hlutverk í liðinu á komandi leiktíðum, bæði í stöðu leikstjórnanda og skyttu.

Við erum afar ánægð með að Elín Anna hafi ákveðið að koma til okkar í Haukum því hún er mikill fengur fyrir liðið og styrkir hópinn verulega í þeirri titlabaráttu sem félagið ætlar sér að taka þátt í á næstu tímabilum.

Frekari frétta af leikmannamálum er að vænta á næstu dögum.