Meistaraflokkarnir í handbolta í eldlínunni

Viktoría og Karen Helga verða vonandi í banastuði á morgun.

Bæði meistaraflokkslið Hauka í handbolta verða í eldlínunni á morgun, laugardag. Karlaliðið fer í víking til Eyja og spilar þar við heimamenn á meðan Haukastelpurnar etja kappi við HK á útivelli. Bæði liðin töpuðu leikjum sínum í síðustu umferð og eru dýrvitlaus að sýna hvað í þeim býr.

Karlarnir keppa við ÍBV, sem vann góðan sigur á ÍR í síðustu umferð, og miðað við þau úrslit má búast við hörkuleik þegar liðin mætast í Eyjum á morgun, laugardag, kl. 15:30. Stelpurnar mæta HK sem tapaði einnig í fyrstu umferð þannig að það má búast við hörkuleik þar sem bæði lið vilja ná sínum fyrsta sigri en leikurinn hefst í Digranesi klukkan 14:00. Við hvetjum alla sem geta að mæta og styðja Hauka til sigurs.

Áfram Haukar!!!