Haukar – Valur í úrslitum fyrirtækjabikars KKÍ á sunnudaginn

HaukarMfl. kvenna í körfuknattleiki leikur til úrslita í fyrirtækjabikars KKÍ á sunnudaginn kl. 17:00 í Njarðvík.

Haukastelpurnar hafa verið að spila mjög vel og unnið alla leiki sína nokkuð örugglega í þessari keppni. Valsstúlkur hafa líka verið nokkuð öflugar og unnu sannfærandi sigur í síðasta leik sínum á móti Grindavík á útivelli og má því búast við hörku viðureign.

Leikurinn fer fram í Njarðvík og ætti nýji útlendur kvennaliðsins, Lele Hardy, að þekkja hverja fjöl í því íþróttahúsi og má búast við að hún og aðrir leikmenn komi ákveðnar til leiks og byrji tímabilið á því að taka fyrsta titil vetrarins í kvennaboltanum.

Heimasíðan hvetur alla stuðningsmenn til að fara til Njarðvíkur og hvetja stelpurnar til sigur.

Áfram Haukar.