Magdeburg-Haukar

Strákarnir okkar töpuðu 34-26 fyrir Magdeburg í Þýskalandi í dag. Þeir byrjuðu leikinn vel, heimamenn náðu þó forystu í byrjun 3-1 en þá kom frábær kafli hjá strákunum okkar og breyttu þeir stöðunni í 3-5. Voru yfir 4-7 og 6-8 og það var ekki fyrr en í stöðunni 9-9 sem Magdeburg náði að jafna. Það kom slæmur kafli síðustu 10 mín í lok fyrri hálfleiks og heimamenn náðu góðri stöðu í hálfleik 16-11. Fyrstu 10 mín í seinni hálfleik voru svipaðar, heimamenn sýndu styrk sinn en ekkert gekk upp hjá okkar mönnum og skoruðu þeir eitt mark þennan tíma og var staðan 23-12 þegar þeir fóru að finna glufur á sterkri vörn Magdeburg

Magdeburg-Haukar

Á laugardaginn hittumst við á Ásvöllum og horfum saman á leikinn hjá strákunum okkar, en þeir lögðu af stað til Þýskalands snemma í morgun.
Leikurinn hefst kl. 13.00 að íslenskum tíma.
Hér getið þið kíkt á heimasíðu {Tengill_16}