Föstudagskaffi á Ásvöllum

Næsta föstudag 24. október fer af stað “Föstudagskaffi á Ásvöllum”. Alla föstudagsmorgna frá kl. 8:00 til kl. 10:00 verður morgunkaffi á borðum í horninu í anddyrinu. Kaffi og meðlæti verður selt á sanngjörnu verði.
Allir vita að góður morgunmatur er fín undirstaða fyrir eril dagsins. Í stað þess að vera á hlaupum út um allan bæ er tilvalið fyrir Haukamenn að hittast í rólegheitum heima á Ásvöllum, spjalla saman og leysa lífsgátuna.

Föstudagskaffið hefst eins og áður segir næsta föstudag og mun formaður félagsins, Þorgeir Haraldsson klippa á fyrstu bununa og fá sér eitthvað í svanginn.

ALLIR VELKOMNIR