Leikur á laugardaginn!

HaukarFyrsti leikur ársins 2011 hjá stelpunum verður núna á laugardaginn. Leikurinn verður að Ásvöllum á móti Fram klukkan 16:00. Svo klukkan 20:00 er annar leikur íslenska landsliðsins í HM og verður hann sýndur á stóru tjaldi. 

 Um að gera að mæta og eyða deginum á Ásvöllum.

Sjáumst!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

Leikur á laugardaginn!

Nú vippum við okkur öll á Ásvelli á laugardaginn klukkan 14.00 og verðum viðstödd þegar Þórhallur Dan Jóhannsson fyrirliði Hauka tekur við bikarnum að leik loknum, en á laugardaginn munu okkar menn leika sinn síðasta leik á tímabilinu er þeir mæta liði ÍR sem eru í harðri baráttu um sæti í 1.deildinni á næsta ári, en það eru okkar menn löngu búnir og tryggja. Leikurinn hefst kl. 14;00 á gervigrasinu okkar og er aðgangseyri 0kr. Að vanda.

Það mun koma ítarlegri umfjöllun um leikinn þegar nær dregur.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…

Leikur á laugardaginn

Stutt & Laggott (Samtal)

Hann; Heyrðu, ætlar þú ekki að skella þér á leikinn á laugardaginn ?

Hún; Hvaða leik ?

Hann; Nú auðvitað Haukar – Sindri í 2.deildinni

Hún; Jú, auðvitað, er hann ekki á laugardaginn klukkan 14;00 á Ásvöllum ?

Hann; Mikið rétt & vissir þú að með sigri Hauka & hagstæðum úrslitum í öðrum leikjum, þá geta Haukar bæði tryggt sér sæti í 1.deildinni á næsta tímabili og jafnvel unnið deildina

Hún; Frábært! Ég sé þig á vellinum, með allri fjölskyldunni!

Hann; Já, & þú veist að það er frítt á völlinn!

Langt & Mjöggott

Á laugardaginn næstkomandi er næst síðasti heimaleikur Hauka í 2.deildinni og afar mikilvægur en með sigri og hagstæðum úrslitum í öðrum leikjum geta þeir tryggt sér sæti í 1.deildinni á næsta tímabili og með gífurlegri heppni verða þeir kannski búnir að tryggja sér sigur í deildinni og því ætlum við Haukafólk að fjölmenna á völlinn. Mótherjar okkar á laugardaginn koma alla leið frá Höfn í Hornafirði, Sindri.

Sindra-menn eru í harðri fallbaráttu, en þeir eru með tveimur stigum fleiri en Magni og með jafn mörg stig og ÍH en með mun lakari markatölu, eða 16 mörk skoruðu og fengið á sig 51 mörk, en Sindra-menn hafa fengið lang flest mörkin á sig á tímabilinu, eða 14 mörkum fleiri en Magni.

Við getum enganveginn vanmetið Hornfirðinga, enda lauk fyrri leikur þessara liða með jafntefli, 1-1, eftir að Hilmar Rafn Emilsson hafði komið okkar mönnum yfir á 35. mínútu jafnaði hinn tvítugi Björn Pálsson, seint í seinni hálfleik. En þetta er einungis eina jafnteflið sem Sindri hefur gert í sumar.

Ekki er hægt að búast við að markamaskínan, Hilmar Rafn Emilsson, verði með um helgina en hann er enn að kljást við meiðsli sem hann hlaut fyrr í sumar. Yared Yedenskachew sem hefur horfið á braut og mun ekki leika fleiri leiki fyrir okkar menn í sumar, en hann hefur farið aftur til Bandaríkjana. Úlfar Hrafn Pálsson og Jónas Bjarnason hafa verið tæpir en verða vonandi með á laugardaginn.

Hjá Sindra er einn leikmaður í leikbanni, en það er hinn góðkunni Óskar G. Óskarsson.

Dómari leiksins verður Sigurður Óli Þórleifsson. Á þessari stundu er einungis búið að ákveða að Ægir Magnússon verði aðstoðardómari, en vonandi verður búið að redda öðrum aðstoðardómara fyrir leikinn. En Guðmundur Grétar Karlsson átti að vera aðstoðadómari en svo verður ekki, hvort einhvað hafi komið uppá, er ég ekki alveg maðurinn til að svara því, en auðvitað vonum við að svo sé ekki.. Sá sem mun hafa eftirlit af þessum skemmtilegum dómurum er enginn annar en Ingi ‘nokkur’ Jónsson.

Hvað segir Haukaspáin ?

Haukaspáin spáir skúrum, það verður ágætur samt sem áður, ekki er búist við meiri vind en vanalega á Ásvöllum. Haukaspáin mælir því með að fólk komi í regnjakka með regnhlíf með sér. En það er samt einhvað sem segir Haukaspánni það að leikmenn, dómara og jafnframt áhorfendur geti losnað við rigninguna, en verið samt tilbúin!

Leikurinn HEFST kl: 14:00 & nú FJÖLMENNUM við á völlinn! En fyrir þá sem ekki vita þá hefur verið frítt á alla heimaleiki Hauka í sumar og verður engin breyting þar á, á laugardaginn!

ÁFRAM HAUKAR!