HSÍ aflýsir öllum frekari leikjum á keppnistímabilinu 2019-2020

Stjórn HSÍ ákvað á fundi sínum í gærkvöld að aflýsa öllu frekara mótahaldi á vegum sambandsins. Ákvörðun þessi er tekin í ljósi þess að yfirvöld hafa ákveðið að framlengja samkomubanni til 4. maí nk. og er því ljóst að ekki verður unnt að hefja keppnir að nýju þar sem félögin þarfnast að minnsta kosti 2-3 vikna undirbúnings til að geta hafið leik.

Í framhaldi af þessu ákvað stjórn HSÍ að núgildandi staða í mótum myndi standa og samkvæmt því eru deildarmeistarar Olís deildar kvenna Fram og deildarmeistarar Olís deildar karla Valur.

Tvö neðstu lið Olís deildar karla (HK og Fjölnir) falla í Grill 66 deild karla og neðsta lið Olís deildar kvenna (Afturelding) fellur í Grill 66 deild kvenna. Sæti í Olís deild karla fá tvö efstu lið Grill 66 deildar karla (Þór Ak. og Grótta) og sæti í Olís deild kvenna fær efsta liða Grill 66 deildar kvenna (FH).

Ekki verða útnefndir Íslandsmeistarar fyrir þetta keppnistímabil.

Hér má lesa nánar um ákvörðun stjórnar HSÍ.