Hópferð Hauka á 3. leik í Vestmannaeyjum

Handknattleiksdeild Hauka ætlar að fara með stuðningsfólk Hauka í hópferð á 3. leik meistaraflokks karla gegn ÍBV þann 5. maí næstkomandi. Farið verður með rútu frá Ásvöllum kl. 10:00 á laugardagsmorgninum og keyrt til Landeyjarhafnar þar sem farið verður með Herjólfi til Vestmannaeyja kl. 12:45. Leikurinn er svo kl. 17:00 en farið verður með Herjólfi tilbaka kl. 21:00.

Greiða þarf fyrir rútuna og miða á leikinn og kostar sá pakki 3500 kr til Hauka en hver og einn sér um að panta Herjólfsferðina fyrir sig. Það er gert vegna þessi að kostnaður í Herjólf er mismunandi eftir aldri.

Skráning í ferðina berst til Herberts á netfangið herbert@haukar.is. Skráningarfrestur er til fimmtudagsins 3. maí.