Stórleikur í kvöld kl. 19:15. Oddaleikur Hauka – Vals í Schenkerhöllinni

Stærsti leikur tímabilsins í Dominos deild kvenna verður háður í kvöld í Schenkerhöllinni er Haukar fá Val í heimsókna í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn og hefst leikurinn kl. 19:15, þriðjudaginn 30. apríl.

Allir leikirnir hingað til hafa unnist á heimavelli og því ljóst að Haukar standa ágætlega að vígi ef tekið er tillit til þess. Nú er aftur á móti að duga eða drepast og ekkert annað en sigur kemur til greina, enda Íslandsmeistaratitilinn í húfi.

Við hvetjum alla Hafnfirðinga og Haukafólk til að fjölmenna í Schenkerhöllina og hvetja stelpurnar í Haukum til sigurs.

Hamborgar seldir við inngang og því er kjörið að mæta snemma með fjölskylduna og byrja fjörið snemma.