Haukar – KA í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla á morgun

Haukar taka á móti Pepsi-deildarliði KA á morgun í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla þetta árið.

Haukar slógu út Vestra í síðustu umferð með stórglæsilegum 3-1 sigri, á meðan að KA leikur sinn fyrsta leik í keppninni í ár.

Viðureignir þessara liða á Ásvöllum síðastliðin ár hafa iðulega verið stórfjörugar og nóg af mörkum hafa litið dagsins ljós, því má búast við hörku rimmu þar sem öllu verður fórnað fyrir sæti í 16-liða úrslitunum.

Leikar hefjast á slaginu 14:00 á morgun, sjálfan verkalýðsdaginn 1. maí og hvetjum við því alla sem eiga kost á, og sjá sér fært að mæta, að gera sér ferð upp á Ásvelli og styðja strákana til sigurs!

Áfram Haukar!

Ljósm.: Hafliði Breiðfjörð, Fotbolti.net