Geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í kvöld kl. 18:00

Haukar geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í kvöld með því að leggja Valskonur að Hlíðarenda í kvöld kl. 18:00.

Haukar leiða einvígið 2-1 og þurfa einn sigur í viðbót til að tryggja sér þann stóra. Allir þrír leikirnir hafa unnist á heimavelli og því er ljóst að Haukaliðið þarf að koma gríðarlega vel stemmt til leiks. Allir leikirnir hafa verið hin besta skemmtun, mikil spenna þar sem liðin hafa skiptst á forystunni oft í hverjum leiknum fyrir sig.
Bæði lið eru vel mönnuð og með góða erlenda leikmenn inna sinna raða.

Við hvetjum alla Hafnfirðinga og auðvitað allt Haukafólk til að fjölmenna að Hlíðarenda og hvetja stelpurnar til sigurs í þessum mikilvæga leik.

Við minnum alla á að leikurinn hefst kl. 18:00