Haukar til Svartfjallalands

Haukar

Nýverið var dregið í EHF keppninni í handbolta karla og voru Haukar í pottinum ásamt fjölmörgum öðrum liðum víðsvegar úr evrópu. Haukar fengu lið HC Mojkovac frá Svartfjallalandi í fyrstu umferð keppninnar en sigurvegari viðureignarinnar fær lið Zaporoshye frá Úkraníu í annari umferð. 

Lítið er vitað um styrkleika Svartfellinganna en þó verður að teljast líklegt að Haukar eigi ágætis möguleika í viðureigninni. Fyrri leikurinn gegn HC Mojkovac fer fram á heimavelli dagana 8.-9. sept en sá seinni viku síðar úti í Svartfjallalandi nánar tiltekið 15. – 16. september. Endanlegir leikdagar verða ákveðnir þegar nær dregur.