Haukar taka á móti Hetti á laugardag

HaukarHaukar taka á móti liði Hattar frá Egilsstöðum á laugardaginn nk. og hefst leikurinn kl.14:00 á Ásvöllum. Gestirnir frá Héraði hafa ekki átt góðu gengi að fagna upp á síðkastið og m.a. ekki unnið í fimm leikjum í röð eða frá því að þeir lögðu KA 2-0 þann 15. júní. Okkar menn hafa hins vegar verið að hala inn stig í flestum leikjum ef frá er talinn afar slakur leikur gegn Fjölni fyrir stuttu. Síðast unnu Haukar hins vegar góðan 1-0 sigur á Tindastól á Króknum.

Haukar sitja í 2. sæti deildarinnar með jafn mörg stig og Víkingur Ólafsvík sem er á toppnum með 22 stig. Hattar menn eru hins vegar með 11 stig í næst neðsta sæti en hafa skal í huga að einungis 5 stig eru þaðan og upp í 5. sæti deildarinnar.