Jafntefli hjá strákunum og stelpurnar spila í kvöld

HaukarHaukar og Höttur gerðu 0-0 jafntefli sl. laugardag á Ásvöllum í leik þar sem Haukar voru mikið meir með boltann en gestirnir vörðust vel. Haukum tókst ekki að koma tuðrunni í netið þrátt fyrir fjölmargar tilraunir til þess og voru okkar menn því eðlilega svekktir með að fá einungis eitt stig úr leiknum. Næsti leikur Hauka er á fimmtudag á Akureyri þegar þeir heimsækja Þórsara. Um að gera fyrir það Haukafólk sem ætlar sér að eyða Verslunarmannahelginni fyrir norðan að skella sér á völlinn!

Haukastelpur eiga hins vegar leik strax í kvöld og etja þær kappi við Þrótt Reykjavík. Leikurinn hefst kl.20:00 og fer fram á heimavelli Þróttar, Valbjarnarvelli í Laugardal.