Haukar taka á móti Gróttu á þriðjudag

HaukarÁ morgun, þriðjudag taka Haukastelpur á móti Gróttu í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í Símabikarkeppni kvenna í handbolta. Símabikarinn er sem sagt heiti á bikarkeppni HSÍ næstu árin. Við vekjum sérstaklega athygli á því að leikurinn fer fram í Schenkerhöllinni en ekki í Strandgötu (þar sem heimaleikirnir í deildinni fara fram). Leikurinn hefst kl.19:30. Mætum öll og styðjum stelpurnar til sigurs!