Haukar leika í Deildarbikarnum um helgina

HaukarÚrslitakeppnin um Deildarbikarinn svokallaða, þar sem fjögur efstu lið N1-deildar karla í handbolta leika um sérstakan bikar, fer fram um helgina. Haukar mæta Fram í undanúrslitum á laugardag kl.14:00. Strax á eftir mætast svo FH og Akureyri í hinum undanúrslitaleiknum.

Á sunnudaginn fer úrslitaleikurinn svo fram kl.14:00. Allir leikirnir fara fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Þetta er nokkuð sem handboltafólk ætti ekki að láta framhjá sér fara.