Haukar taka á móti Aftureldingu í kvöld

Haukar-Afturelding, Ásvellir kl.19:30Haukar taka á móti Aftureldingu í dag í N1-deild karla í handbolta. Leikurinn fer fram í Schenkerhöllinni á Ásvöllum og hefst kl.19:30. 

Eins og nokkuð þekkt er orðið eru okkar menn með örugga forystu í deildinni, sitja í efsta sæti með 19 stig og hafa 8 stig á Akureyri, FH og ÍR sem öll eru með 11 stig í öðru til fjórða sæti deildarinnar.

Gestirnir úr Mosfellsbæ eru neðstir í deildinni með 6 stig. Þeir eru þó ekki nema 5 stigum frá öðru sæti deildarinnar og eru langt því frá að vera auðveldir viðureignar. Afturelding hefur gert jafntefli í síðustu tveimur leikjum sínum í deildinni, gegn Val og HK.Haukar hafa unnið alla sína leiki í deildinni ef frá er talinn fyrsti leikurinn, sem var gegn HK og endaði með jafntefli.

Það er óhætt að lofa hörku leik í kvöld þó þarna mætist liðin í efsta og neðsta sæti deildarinnar, deildin er jöfn og augnabliks vanmat getur kostað sigur. Allir á völlinn og áfram Haukar!

Haukar taka á móti Aftureldingu í kvöld!

HaukarÍ kvöld fer fram æsispennandi leikur í N1 deild karla á heimavelli okkar, Schenkerhöllinni!

Haukar taka á móti Aftureldingu og ef marka má úrslit fyrri viðureignar liðanna á þessu tímabili verður leikurinn jafn og spennandi, en hún fór 21-22 fyrir Hauka í æsispennandi viðureign.

 Afturelding hefur ekki riðið feitum hesti frá N1 deildinni hingað til en liðið situr í 7. sæti með 6 stig, en eins og fyrrnefnd viðureign gefur til kynna má ekki vanmeta lið Aftureldingar því innan þeirra raða eru margir flottir leikmenn sem geta vel strítt Haukum.

Fjölmennum á völlinn í kvöld en leikurinn hefst klukkan 19:30 í kvöld!

 

Áfram Haukar!