Haukar og FH mætast í kvöld

HaukarHaukar taka á móti FH í síðustu umferð N1-deildar karla sem fram fer í kvöld. Leikið er í Schenkerhöllinni á Ásvöllum og hefst leikurinn kl.19:30. Leikurinn hefur í sjálfu sér enga þýðingu fyrir stöðu liðanna í deildinni, Haukar hafa þegar tryggt sér deildarameistaratitlinn og FH-ingar eru öryggir í öðru sæti deildarinnar.

Hinn víðfrægi montréttur er hins vegar að sjálfsögðu að veði í kvöld og ekki spurning að sigur er gott veganesti inn í komandi úrslitakeppni. Haukafólk ætti því að fjölmenna og styðja strákana til sigurs gegn nágrönnum okkar í kvöld, leikir liðanna eru alltaf góð skemmtun og ekki spurning að mikið fjör verður á fjölum Schenkerhallarinnar í kvöld.

Áfram Haukar!