Haukar komnir í bikarúrslit 2014 – Bikarsaga Haukamanna rakin

Haukar fagna titlinum árið 2010Á morgun verður sannkallaður stórleikur í úrslitum Coca Cola bikars karla þegar karlalið Hauka leikur gegn ÍR í  Laugadalshöll kl. 16:00. Fyrr í kvöld unnu Haukar FH í undanúrslitunum en þetta er annað árið í röð sem leikið eftir nýju fyrirkomulagi þar sem  undanúrslitin eru einnig leikin í Laugardalshöll. Áður var það þannig að aðeins úrslitaleikurinn var leikinn í höllinni og hafa Haukamenn unnið  bikarinn 6 sinnum úr 7 tilraunum.

Fyrst unnu Haukar bikarinn árið 1980 þegar að Haukar unnu KR 22 – 20 í úrslitaleik en þetta var aukaleikur um titilinn eftir að liðin skildu jöfn 18 – 18. Þessi leikur var jafn og spennandi allan leikinn en það var síðan á Haukar sem sigu framúr á endanum. Árni Hermannsson var hetja Hauka í leiknum með því að vera markahæstur með 6 mörk auk þess að eiga fjöldann allan af línusendingum á Ingimar Haraldsson sem skoraði  5 mörk. En þess má geta að Ingimar er faðir Matthíasar Árna fyrirliða Haukaliðsins í dag.
Haukar þurftu síðan að bíða lengi eftir næsta bikartitli en árið 1997 komust Haukar í bikarúrslit og mættu þar KA í hörkuleik. Haukar voru þar yfir í hálfleik 14 – 12 og náðu síðan að halda þeirri forustu út leikinn og unnu á endanum 26 – 24 og þar með annan bikarmeistaratitil Haukamanna en þess má geta að í undanúrslitum það árið unnu Haukar FH. Markahæstir Haukamanna í úrslitaleiknum voru Rúnar Sigtryggsson með 7 mörk og Gústaf Bjarnason skoraði 5 en í marki Hauka átti Bjarni Frostason stórleik. Í liði Hauka þetta árið var einnig annar faðir núverandi leikmanns en það er Petr Baumruk faðir Adam Hauks en einnig var Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari og fyrrverandi þjálfari Hauka í liði Hauka þetta árið.
Næst komust Haukar í bikarúrslit árið 2001 þar sem Haukar mættu HK. Í leiknum voru Haukamenn með yfirhöndina allan leikinn og voru þeir yfir í hálfleik 14 – 9 og unnu að lokum sigur 24 – 21. Markahæstur Haukamanna í leiknum var Rúnar Sigtryggsson með 7 mörk en á eftir honum með 5 mörk komu Jón Karl Björnsson og núverandi aðstoðarþjálfari Hauka, Óskar Ármannsson.
Árið eftir komust Haukar aftur í bikarúrslit og að þessu sinni voru það Frammarar sem voru mótherjar Haukamanna. Sá leikur var spennandi fyrstu mínúturnar en um miðja fyrri hálfleik tóku Haukar við sér og leiddu í hálfleik 16 – 9 og unnu að lokum öruggan tíu marka sigur 30 – 20 þar sem Halldór Ingólfsson átti stórleik og skoraði 14 mörk. Þar með var fjórði bikarmeistaratitill Hauka staðreynd og það í jafnmörgum úrslitaleikjum.
Fyrsta og eina tap Haukamanna í bikarúrslitum kom árið 2006 en þá léku Haukamenn gegn liðið Stjörnunnar. Eftir jafnan og spennandi fyrri hálfleik voru Haukamenn yfir í hálfleik 11 – 9 en í seinni hálfleik skellti Roland Eradze markmaður Stjörnunnar í lás í markinu og tryggði sigur Stjörnunnar 24 – 20 en hann varði 27 skot í leiknum.  Í leiknum var skotnýting og þar með markaskor Hauka skelfilegt og enduðu 4 leikmenn markahæstir með einungis 3 mörk. En þess má geta að í liði Stjörnunnar þetta árið var þjálfari Haukamann í ár, Patrekur Jóhannesson.
Haukamenn komst ekki aftur í bikarúrslit fyrr en árið 2010 og þá var mótherjinn Valur. Leikurinn var jafn og spennandi í fyrri hálfleik og voru Haukar yfir að honum loknum 9 – 8 og héldust liðin að í seinni hálfleik einnig. En um miðjan seinni hálfleik þegar staðan var 14  – 14 breyttu Haukamenn um vörn og unnu lokakaflann 9 – 1 og unnu leikinn að lokum 23 – 15. Í þessum leik var maður leiksins markvörður Hauka Birkir Ívar Guðmundsson en hann varði 23 skot en markahæstur Haukamanna í leiknum var Guðmundur Árni Ólafsson með 7 mörk og á eftir honum kom Björgvin Hólmgeirsson en Björgvin leikur í dag með ÍR sem spilar gegn Aftureldingu í hinum undanúrslitaleiknum. Meðal markaskorara Haukamanna í leiknum voru Sigurbergur Sveinsson og Elías Már Halldórsson en Tjörvi Þorgeirsson, Þórður Rafn Guðmundsson og Jónatan Ingi Jónsson tóku einnig þátt í leiknum en þeir eru allir í leikmannahópi Hauka í dag sem og að Óskar Ármannsson aðstorðarþjálfari var einnig aðstoðarþjálfari Hauka í leiknum.
Síðast voru Haukar í Höllinni fyrir tveimur árum þegar Haukamenn léku gegn Fram. Haukamenn komu grimmir til leiks í þeim leik og áttu Frammarar eiginlega aldrei séns í Haukamenn í leiknum en Haukar voru 17 – 11 fyrir í hálfleik og unnu að lokum sigur 31 – 23. Markahæstir Haukamanna í þeim leik voru Sveinn Þorgeirsson og Stefán Rafn Sigurmannsson með 8 mörk en Aron Rafn Eðvarðsson átti flottan leik í markinu og varði 18 skot. Í liði Hauka þetta árið voru 6 leikmenn sem eru í leikmannahópi liðsins í dag þeir Tjörvi Þorgeirsson, Þórður Rafn Guðmundsson, Jónatan Ingi Jónsson, Einar Pétur Pétursson, Árni Steinn Steinþórsson og fyrirliðinn Matthías Árni Ingimarsson.

Sagan er því þannig að karlalið Hauka hefur komist í bikarúrslit 7 sinnum og unnið bikarinn í 6 af þessum skiptum en síðast vannst titillinn 2012. Verði Haukamenn bikarmeistarar í ár jafna þeir Val sem hafa oftast orðið bikarmeistarar í karlaflokki eða 7 sinnum. Næst síðasta skrefið í þeirri baráttu verður á morgun þegar Haukamenn mæta ÍR í Laugadalshöllinni en upphitun hefst á Ásvöllum kl. 14:00 og rútur fara síðan í Höllinn kl. 15:00 og taka einnig fólk til baka. 
Mætum öll í rauðu og styðjum Hauka til sigurs í bikarnum. Áfram Haukar!