Við minnum aftur á stórviðburðinn í kvöld er Haukar taka á móti Val í N1-deild karla hér í Schenkerhöllinni á Ásvöllum. Eftir leik fá Haukar afhentan sjálfan Deildarmeistaratitilinn og hvetjum við allt Haukafólk til að koma og fagna með strákunum!
Leikurinn hefst kl.19:30. Áfram Haukar!