Marija Gedroit lang markahæst í úrvalsdeild kvenna.

Marija Gedroit

Vinstri skytta Hauka Marija Gedroit var lang markahæst í N1-deild kvenna þennan vetur með 156 mörk,  sú sem næst komst Mariju var Hanna G. Stefánsdóttir með 134 mörk.  Það hefur verið sannkallaður hvalreki fyrir Hauka að fá Mariju til liðs við okkar ungu og efnilegu stelpur.  Marija verður áfram í herbúðum Hauka næsta vetur.  Haukar óska Mariju til hamingju með þennan frábæra árangur.