Handboltabúðir Hauka 2013

HaukarAron Kristjánsson, landsliðsþjálfari, og Hulda Bjarnadóttir, kennari, ætla að sjá um handboltabúðir Hauka þetta árið og fá þau góða hjálp frá leikmönnum meistaraflokka Hauka.

Farið verður í undirstöðuatriði handboltans. Kennd verða ýmis skotafbrigði, gabbhreyfingar og leikatriði. Kunn andlit úr N1-deildinni koma í heimsókn.

Allir fá vatnsbrúsa frá Íslandsbanka og Góa sér um  páskaeggin. Að venju endum við handboltabúðirnar á hinni geysivinsælu Páskaeggjavítakeppni á markverði meistaraflokkanna.

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar með því að smella hér

Skráning fer fram hjá Aroni Kristjánssyni á netfanginu aron@haukar.is – Vinsamlegast gefið upp: Full nafn barns, fæðingarár, nafn forráðamanns og símanúmer.