Haukar í úrvalsdeild á næsta tímabili

HaukarHaukar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Hött á Egilsstöðum í kvöld og tryggðu sér sæti í úrvalsdeild á næsta tímabili. Sigur Hauka var afgerandi og enduðu Haukar með að sigra deildina.

Liðið mun koma að Ásvöllum rúmlega 22:00 og verður móttaka fyrir drengina sem og verðlaunaafhending fyrir sigur í deildinni mun fara fram.

Við viljum sjá sem flesta taka á móti drengjunum og fagna með þeim eitthvað áfram.

ÁFRAM HAUKAR