Haukar deildarmeistarar 1. deildar

Haukar koma til með að leika í Dominos-deild karla á násta ári en liðið tryggði sér deildarmeistaratitilinn með sigri á Hetti á Egilsstöðum á föstudaginn síðasta, 70-98.

Margmenni var komið til að fylgjast með leiknum upp á Ásvöllum en fyrirhugað var að senda Haukar TV austur til að sýna leikinn. Það gekk ekki upp og var því Live Statti leiksins varpað á tjald og mikill fögnuður braust út þegar leiknum lauk. Liðið kom svo upp í íþróttahús um kl. 22 og hafði heldur betur bæst í hóp þeirra stuðningsmanna sem tóku á móti þeim með miklum fögnuði.

Þar sem ekki var hægt að senda deildarmeistarabikarinn austur fór verðlaunaafhending fram á Ásvöllum þar sem Hannes Jónsson, formaður KKÍ, og Guðbjörg Norðfjörð, varaformaður KKÍ, komu og krýndu Hauka Deildarmeistara.

Til hamingju Haukar.