Haukar eru með tvö lið í úrslitum hjá yngri flokkum í bikarnum á sunnudaginn

Mynd af strákunum eftir sigur á Val í 4. liða í bikar

4. flokkur karla ásamt þjálfurum eftir sigurinn í undanúrslitum í gær.

Haukar eiga tvö hörkulið í úrslitum yngri flokka í bikarnum en úrslitaleikir yngri flokka verða leiknir á sunnudaginn í Höllinni.
Á dögunum vann 2. flokkur sé rétt til að keppa í úrslitum þegar þeir unnu frækinn sigur á Aftureldingu í Mosfellsbæ. Lokatölur 23-25 (9-13). Þeir mæta Val í úrslitum og hefst leikurinn kl. 20:00. Þjálfari þeirra er Einar Jónsson.
Í gærkvöldi léku svo strákarnir á eldra ári í 4. flokki við Val um sæti í Höllinni. Haukar höfðu yfirhöndina allan leikinn og sigruðu að lokum 29-21 (16-8). Leikurinn hefst kl. 18:30. Þjálfarar þeirra eru Sigurjón Sigurðsson og Jens Gunnarsson.

Það er því kjörið tækifæri að skora á allt Haukafólk að mæta í Höllina og styðja við bakið á þessum framtíðarleikmönnum okkur en leikirnir eru í röð, fyrst 4. flokkur og svo 2. flokkur.

2. flokkur að fagna eftir sigur á Aftureldingu í undanúrslitum

Strákarnir í 2. flokki fagna góðum sigri á Aftureldingu sem tryggði þeim sæti í úrslitum bikarsins í Höllinni.

 

 

 

 

 

 

 

Áfram Haukar!