Njarðvík – Haukar í Ljónagryfjunni kl. 19:15

emilbarjaDominos deild kk. fer aftur af stað í kvöld, fimmtudaginn 26. febrúar, eftir bikarfríið og munu strákarnir gera sér ferð í Ljónagryfjunna og etja kappi með Njarðvíkinga.

Haukar hafa unnið síðustu þrjá leiki sína og var góður stígandi í leik liðsins. Mjög mikilvægir sigrar unnust og náðist mikilvægir innbyrðis sigra á móti Stjörnunni og Þór Þorlákshöfn og svo glæsilegur sigur á efsta liði Dominos deildar, KR.

Njarðvíkingar hafa verið að spila vel eftir að hafa skipt um útlending og sitja nú í 3-4 sæti, einum leik á undan okkar strákum og því er leikurinn gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið. Haukarnir unnu heimaleikinn á móti Njarðvík með minnsta mun og geta því komist í 3 sæti með sigri og átt innbyrðis á bæði Stjörnuna og Njarðvík.

Við hvetjum Haukamenn til að mæta í Ljónagryfjuna til að styðja strákana í þessum mikilvæga leik.