Bikarsaga kvennaliðs Hauka í handboltanum

Coca Cola bikarinn 2015Á morgun, fimmtudag kl. 17:15, leika Haukastelpur í undanúrslitum Coca Cola bikarsins. Þriðja árið í röð er leikið eftir nýju fyrirkomulagi þar sem undanúrslitin eru einnig leikin í Laugardalshöll og er þetta því annað árið í röð sem Haukastelpur taka þátt í því og annað árið sem mótherjinn í undanúrslitum er Valur. Áður var það þannig að aðeins úrslitaleikurinn var leikinn í Höllinni og hafa Haukastelpur komist í bikarúrslit sex sinnum og í fjögur skipti hafa þær unnið bikarinn.
Fyrsta skiptið sem Haukastelpur komust í bikarúrslit var árið 1997 en þá var mótherjinn einmitt Valur. Haukastúlkur unnu þann leik 16 – 13 eftir að hafa verið yfir 9 – 6 í hálfleik en leikurinn var spennandi allan tímann en okkar konur voru á endanum sterkari og skoruðu síðustu 3 mörk leiksins. Markahæstar Hauka í leiknum voru þær Judit Esztergal og Hulda Bjarnadóttir með 4 mörk hvor. Þessi sigur markaði tímamót hjá kvennaliði Hauka þar sem þetta var fyrsti bikarmeistaratitill þeirra.
Næst komust Haukastúlkur í úrslit tveimur árum síðar og var mótherjinn þetta skiptið lið Fram og boðið var upp á  mikinn spennuleik. En ekki fór það eins og í fyrra skiptið því Haukastelpur töpuðu naumlega 17 – 16. Í þeim leik var það markmaður Fram sem gerði útslagið en Haukastelpur voru með skelfilega skotnýtingu í leiknum.
Bikarúrslitin náðust næst árið 2001 og var mótherjinn það árið lið ÍBV og enn eina ferðina var þetta sennuþrunginn bikarslagur en leikurinn fór í framlengingu eftir að jafnt hafði verið að loknum venjulegum leiktíma, 17 – 17. Aftur var það markvörður mótherjanna sem var eitthvað fyrir Haukastúlkum sem skoruðu aðeins 2 mörk í allri framlengingunni og töpuðu 21 – 19.
Aftur voru Haukastelpur mætta í Höllina tveimur árum seinna en árið 2003 mættu þær aftur liði ÍBV. Haukastúlkur mættu grimmar til leiks og voru staðráðnar í að hefna fyrir tapið tveimur árum áður. Leikurinn var jafn og spennandi en Eyjastúlkur voru yfir í hálfleik 11 – 10. Í seinni hálfleik náðu Haukakonur að komst betur inn í leikinn og unnu að lokum 23 – 22. „Gamla“ kempan, Harpa Melsteð, var markahæst Hauka í leiknum með 5 mörk og fagnaði þar öðrum bikartitli sínum og Haukakvenna.
Árið eftir mættust liðin á ný í bikarúrslitum og þá náðu Eyjakonur að hefna fyrir tapið árið á undan með sigri 35 – 32 eftir að hafa verið yfir 17 – 16 í hálfleik. Eyjakonur, sem voru með feiknar öflugt lið á þessum tíma, voru yfir nær allan leikinn. Markahæstar Hauka voru Ramune Pekarskyté með 11 mörk og Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir skoraði 9  en Ragnhildur verður mótherji Haukastúlkna á morgun þar sem hún leikur núna með Val.
Árið 2006 komust Haukastúlkur enn á ný í bikarúrslit en eins og svo oft áður var mótherjinn lið ÍBV. Haukastúlkur komur ákveðnar til leiks og voru yfir 12 – 10 í hálfleik og héldu svo forustunni út leikinn og unnu að lokum 29 – 25, þar sem Hanna Guðrún Stefánsdóttir átti stórleik og skoraði 14 mörk en Hanna leikur með Stjörnunni í dag í hinum undanúrslitaleiknum.
Síðast voru Haukastúlkur í höllinni árið 2007 þar sem mótherjinn var Grótta. Haukarstúlkur unnu þann leik 25 – 22 eftir að hafa verið yfir nánast allan leikinn og unnu þar með sinn fjórða bikarmeistaratitil. Markahæstar í leiknum voru Ramune Pekarskyté og Hanna Guðrún Stefánsdóttir með 7 mörk hvor.
Í fyrra voru Haukastelpur í fyrsta skipti með eftir að fyrirkomulaginu var breytt í Final 4 og var mótherjinn í undanúrslitum, eins og áður hefur verið nefnt, sterkt lið Vals. Haukar mættu grimmar til leiks og skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins en eftir það styrktu Valskonur vörn sína og áttu Haukar í stökustu vandræðum í sókninni og voru undir í hálfleik 13 – 8. Í síðari hálfleik var meira jafnræði með liðunum en þó án þess að Haukastúlkur næðu að ógna forystu Valskenna og lokatölur leiksins voru 25 – 21 fyrir Val. Markahæstar í leiknum voru Marija Gedroit með 7 mörk og Karen Helga Díönudóttir með 4 en þær eru báðar í lykilhlutverkum í liðinu í ár.

Sagan er því þannig að kvennalið Hauka hefur komist í bikarúrslit 7 sinnum og unnið bikarinn í 4 af þessum skiptum en síðast vannst titillinn 2007 en það er einmitt einnig síðasta skiptið sem Haukar voru í úrslitum. En stelpurnar eru staðráðnar í að gera betur en í fyrra þegar þær mæta Valskonum á morgun, fimmtudag, kl. 17:15 í Höllinni. Rútur fara frá Ásvöllum inn í Höll kl. 16:15 og keyra einnig fólk til baka eftir leik.
Mætum öll í rauðu og styðjum Hauka til sigurs í bikarnum. Áfram Haukar!

Höf. Herbert Ingi Sigfússon, aðstoð Sigurjón Sigurðsson.