Haukar deildarmeistarar í 3.flokki í handknattleik.

HaukarHaukar urðu í gær Deildarmeistarar í 3. flokki karla 2.deild í handknattleik. Liðið tryggði sér titilinn með þæginlegum sigri á ÍBV í Vestmannaeyjum.  Við óskum strákunum og þjálfurum þeirra til hamingju. Átta liða úrslit um Íslandsmeistaratitil hefst strax eftir páska og verður þar hart barist og munu Haukar mæta þar KA.

Haukar eignuðust því tvo deildarmeistaratitla á tveimur dögum um helgina. 

Áfram Haukar