Góður sigur á Fjarðabyggð

HaukarHaukar og Fjarðabyggð mættust í Lengjubikarnum í dag fyrir austan, en þessi leikur átti að fara fram síðustu helgi en var frestaður vegna eldgoss. Til að gera langa sögu stutta þá sigruðu Haukar leikinn með fjórum mörkum gegn engu.

Arnar Gunnlaugsson og Hilmar Rafn Emilsson skoruðu báðir tvö mörk hvor. Fyrir þá sem vilja lesa stutta en hnitmiðaða umfjöllun um leikinn frá Fótbolti.net geta…

Fjarðabyggð 1-4 Haukar:
0-1 Arnar Gunnlaugsson
0-2 Hilmar Emilsson
0-3 Hilmar Emilsson
1-3 Fannar Árnason
1-4 Arnar Gunnlaugsson

Haukar gerðu góða ferð austur í Fjarðabyggðarhöllina í dag þar sem þeir unnu heimamenn með fjórum mörkum gegn einu. Arnar Gunnlaugsson og Hilmar Emilsson skoruðu tvö mörk hvor fyrir Hauka en Fannar Árnason skoraði fyrir Fjarðabyggð.

Haukar voru eins og tölurnar gefa til kynna betra liðið í leiknum í dag. Arnar Gunnlaugsson kom þeim yfir í fyrri hálfleiknum með skoti úr teignum eftir fyrirgjöf Garðars Ingvars Geirssonar.

Hilmar Emilsson bætti öðru marki við á ótrúlegan hátt þegar hann skaut upp í markvinkilinn við enda vítateigsins nærri endalínu og staðan 0-2 fyrir Hauka í hálfleik.

Hilmar bætti við þriðja marki Hauka í síðari hálfleiknum eftir klafs í teignum en Fjarðabyggð minnkaði strax muninn í 1-3 eftir að hafa komist inn í sendingu og afgreitt færið.

Arnar Gunnlaugsson gerði svo endanlega út um sigurinn með góðu skoti utan teigs þar sem hann lagði hann snyrtilega upp í markið.