Handboltavertíðin Hefst!

HaukarJæja góðir hálsar! Þá er komið að því, biðin er á enda!

Keppnistímabilið í N1-deild Karla hefst í kvöld með heilli umferð og sækja Haukadrengir góðvini okkar í HK heim í Digranesið klukkan 19:30.

HK hafa að skipa gríðarlega sterku liði eins og við vitum en Haukar eru ekki vanir að bera óþarflega mikla virðingu fyrir sterkum andstæðingum og verður leikurinn án efa gríðarlega jafn og spennandi.

 

Sjáumst á vellinum, Áfram Haukar!