Bikarúrslit á Ásvöllum á morgun þriðjudag

HaukarÞriðjudaginn 27. september mun fara fram bikarúrslitaleikur á Ásvöllum á milli Hauka og  Keflavíkur í 2. flokki. Það er ekki á hverjum degi sem Haukamenn leika til úrslita í bikarkeppni og viljum við hvetja alla Haukara til að mæta og hvetja framtíðarleikmenn okkar til sigurs. Það væri frábær endir á góðu tímabili að fagna Valitorbikarnum á heimavelli. Leikurinn hefst kl. 19.00.

 

Með bestu kveðju,
Jón Björn Skúlason, formaður knattspyrnudeildar Hauka.