Fréttasafn

  • Maria Ines semur við þýskt lið

    Skyttan Maria Ines de Silva Perreira hefur samið við HSG BAd Wildungen Vipers sem leikur í efstu deild í Þýskalandi en liðið lenti í 11. sæti þýsku Bundesligunnar á nýloknu tímabili. Maria hefur verið einn af burðarrásum kvennaliðs Hauka síðustu 4 ár en með Haukum vann hún deildarmeistaratitilinn 2016. Hún hefur verið einn markahæsti leikmaður…

  • Forsala aðgöngumiða!

    Forsala aðgöngumiða fyrir 4ja leik Hauka og Selfoss í úrslitaeinvígi Olís deildar karla fer fram í kvöld, þriðjudagskvöld, á Ásvöllum. Hægt verður að koma á Ásvelli og ná sér í miða milli 17:00 og 19:00. 2000 kr kostar fyrir 17 ára og eldri en frítt er inn fyrir 16 ára og yngri. ATH. Ná þarf…

  • Verkefni um andlega heilsu iðkenda Hauka að hefjast

    Nýverið samþykkti aðalstjórn Hauka að taka þátt í verkefni sem miðar að því að bæta andlega heilsu iðkenda. Bára Fanney Hálfdanardóttir, Kristín Fjóla Reynisdóttir og Gerður Guðjónsdóttir hafa umsjón með verkefninu og er það styrkt af Minningarsjóði Ólafs Rafnssonar. Bára Fanney er sálfræðingur, Kristín Fjóla mun útskrifast úr læknisfræði í vor og Gerði þekkja allir…

  • Lokahóf Haukagetrauna

    Það var þétt setinn bekkurinn á lokahófi Haukagetrauna á sunnudaginn. Formaður mótanefndar, Ágúst Sindri, stjórnaði athöfninni sem fór hið besta fram. 1.verðlaun hlaut STEINN – Gissur Guðmundsson, 2. verðlaun VALENCIA – Magnús Gunnarsson og LUNDI hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir flestar unnar umferðir – Elías Atlason og Þórður Jón. Glæsilegt hlaðborð var í boði Knattspyrnudeildar.

  • Frábær Hauka-dagur með Söru Björk

    Frábær Hauka-dagur á Ásvöllum í gær þegar landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir  var sæmd Silfurstjörnu Hauka. Sara tók sér góðan tíma til að spjalla við yngri iðkendur þar sem Kristján Ómar Björnsson, þjálfari meistaraflokks karla, var í hlutverki spyrils. Þar veitti hún svo sannarlega mörgum iðkendum góð ráð fyrir framtíðina enda er Sara mikil fyrirmynd, bæði…

  • Daníel Þór Ingason semur við Ribe Esbjerg HH

    Skyttan Daníel Þór Ingason hefur samið við danska félagið Ribe Esbjerg um að leika með liðinu í dönsku úrvalsdeildinni næstu 3 árin. Daníel kveður þar með Hauka eftir að hafa verið lykilmaður í meistaraflokksliði félagsins síðustu 3 tímabili. Þar að auki hefur Daníel tryggt sér fast sæti í landliðshóp Íslands og var hann með liðinu…

  • Forsala aðgöngumiða á 3ja leik Hauka og Selfoss

    Haukar og Selfoss leika þriðja leik sinn í úrslitarimmu liðanna um Íslandsmeistaratitilinn á morgun, sunnudag, kl. 18:00. Í tilefni af því ætla Haukar að bjóða upp á forsölu aðgöngumiða á Ásvöllum á dag, laugardag, milli 15:00 – 17:00. Forslan heldur svo áfram á leikdag, sunnudag, frá klukkan 13:00 og fram að leik á Ásvöllum. Þá geta…

  • Lokahátíð yngri flokka

    Lokahátíð yngri flokka verður haldin sunnudaginn 19. maí á Ásvöllum en þá munu iðkendur handboltans hittast til að gera upp árið. Hátíðin hefst kl. 16:00 og verður boðið upp á boltaþrautir og hraðamælingu fyrir 8., 7. og 6. flokk inn í Ólafssal. Grillaðar verða pylsur og drykkir fyrir mannskapinn og er öllum boðið. Eftir hátíðina…