Forsala aðgöngumiða á 3ja leik Hauka og Selfoss

Haukar og Selfoss leika þriðja leik sinn í úrslitarimmu liðanna um Íslandsmeistaratitilinn á morgun, sunnudag, kl. 18:00. Í tilefni af því ætla Haukar að bjóða upp á forsölu aðgöngumiða á Ásvöllum á dag, laugardag, milli 15:00 – 17:00. Forslan heldur svo áfram á leikdag, sunnudag, frá klukkan 13:00 og fram að leik á Ásvöllum. Þá geta allir komið og nælt sér í miða til að forðast biðröð fyrir leik. Meðlimir Hauka í Horni þurfa ekki að ná sér í miða í forsölu þar sem að kortin þeirra gild við hurðina á leikdag. Þeir sem eru með A, B eða D kort frá HSÍ geta einnig náð sér í miða á þessum tímum. Húsið sjálft opnar svo klukkutíma fyrir leik eða kl. 17:00. Fjölmennum í rauðu og áfram Haukar!