Forsala aðgöngumiða!

Forsala aðgöngumiða fyrir 4ja leik Hauka og Selfoss í úrslitaeinvígi Olís deildar karla fer fram í kvöld, þriðjudagskvöld, á Ásvöllum. Hægt verður að koma á Ásvelli og ná sér í miða milli 17:00 og 19:00. 2000 kr kostar fyrir 17 ára og eldri en frítt er inn fyrir 16 ára og yngri. ATH. Ná þarf í barnamiða fyrir þau börn sem ætla á leikinn. Takmarkað magn miða er í boði þannig að fyrstur kemur fyrstur fær.
Einnig minnum við á rútuferð á Selfoss en hægt er að skrá sig í hana með því að senda tölvupóst á herbert@haukar.is en verðið fyrir rútuferðina er 1500 kr.