Fréttasafn

  • Forsala miða á bikarleikinn er í dag og á morgun

    Nú styttist í bikarleik Hauka og Skallagríms í undanúrslitum Geysisbikars kvenna sem fer fram n.k. fimmtudag kl. 20:15. Forsala aðgöngumiða verður á Ásvöllum í kvöld og annað kvöld frá kl. 18:30-20:00. Þeir sem vilja ná sér í miða á netinu geta gert það og þá er nauðsynlegt að versla aðeins í gegnum þennan miðasöluhlekk en…

  • Fréttatilkynning frá Handknattleiksdeild Hauka

    Aron Kristjánsson tekur við Haukaliðinu í vor Handknattleiksdeild Hauka hefur gert samning við Aron Kristjánsson um þjálfun karlaliðs Hauka að loknu yfirstandandi tímabili.  Aron tekur við liðinu af Gunnari Magnússyni sem er að ljúka sínu 5 tímabili með Haukaliðið. Aron þjálfaði Hauka síðast fyrir 7 árum og hefur víða komið við síðan þá. Frá þeim…

  • Mikaela Nótt valin í lokahóp U17 í knattspyrnu

    Mikaela Nótt Pétursdóttir hefur verið valin í leikmannahóp U17 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu til að leika tvo vináttuleiki við Írland. Leikið verður á Írlandi 14. og 16. febrúar n.k.  Landsliðsþjálfari U17 kvenna er Jörundur Áki Sveinsson. Mikaela er fædd árið 2004 og er leikmaður í 3. flokki kvenna en hún spilaði þrjá leiki með…

  • Stjórn knattspyrnudeildar Hauka 2020

    Aðalfundur knattspyrnudeildar Hauka var haldinn sl. þriðjudag á Ásvöllum. Á fundinum fór Halldór Jón Garðarsson, formaður deildarinnar, yfir síðasta keppnistímabil og helstu markmið stjórnar fyrir árið 2020 en öll stjórnin bauð sig fram til endurkjörs.  Þá fór Karl Guðmundsson, gjaldkeri deildarinnar, yfir rekstur meistaraflokka síðasta árs. Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fyrir árið 2020 er skipuð eftirtöldum…

  • Viktor Máni til Hauka.

    Viktor Máni Róbertsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Hauka og kemur hann frá KV. Viktor Máni er fæddur árið 2000 og er miðjumaður. Byrjaði sinn knattspyrnuferil í Breiðabik en eftir það lá leiðin hans í vesturbæinn og spilaði hann þar með sterku 2.flokks liði KR/KV. Meistaraflokksferill Viktors Mána hófst með KV í fyrra…

  • Karatedeildin 30 ára

    1.febrúar 1990 komu nokkrir ungir piltar saman í Haukahúsinu við Flatahraun og stofnuðu Karatedeild  Hauka. Hefur deildin vaxið og dafnað síðan og unnið til margra viðurkenninga. Karatedeildin hyggst fagna þessum tímamótum í hófi  29. febrúar. Núverandi formaður er Kristján Ó. Davíðsson.

  • Bikarleikir framundan

    Núna í vikunnu fara fram tveir bikarleikir hjá meistaraflokkum karla og kvenna. Strákarnir ríða á vaðið í kvöld, miðvikudagskvöld, þegar að Fjölnisstrákar koma í heimsókn á Ásvelli kl. 19:30. Það er mikið undir og því um að gera fyrir fólk að fjölmenna á Ásvelli í rauðu til að styðja strákana áfram í bikarnum. Minnum á hamborgaratilboðin…

  • Jóganámskeið Hauka að Ásvöllum

    Vegna góðrar þátttöku á fyrri námskeiðum ætlum við að bjóða upp á nýtt 10 vikna jóganámskeið fyrir börn og unglinga í 1. til 10. bekk grunnskóla. Námskeiðin hefjast þann 18.febrúar nk. Kennsla fer fram á 2.hæð á Ásvöllum. Þriðjudagar: Námskeið 1 1.-4. bekkur kl: 15:00 – 15:30 Námskeið 2 5.-10. bekkur kl: 15:40 – 16:20…

  • Hafnarfjarðarbær og Haukar undirrita samkomulag um knatthús

    Í dag var skrifað undir samkomulag á milli Hafnarfjarðarbæjar og Knattspyrnufélagsins Hauka um byggingu knatthúss á Ásvöllum. Þau Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri, og Samúel Guðmundsson, formaður Hauka, skrifuðu undir samkomulagið í hinum glæsilega Ólafssal ásamt Geir Bjarnasyni, íþrótta- og tómstundarfulltrúa bæjarins, og Magnúsi Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Hauka. Nokkrir iðkendur í knattspyrnudeildinni sem voru á æfingum á Ásvöllum…