Drottning Finnur 6
Nýlega var haldinn aðalfundur Skákdeildar Hauka. Margar athyglisverðar breytingar eru framundan í starfseminni sem kynntar verða síðar. Nýr formaður var kjörinn Kristján Ómar Björnsson og er hann boðinn velkominn til starfa.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Nýlega var haldinn aðalfundur Skákdeildar Hauka. Margar athyglisverðar breytingar eru framundan í starfseminni sem kynntar verða síðar. Nýr formaður var kjörinn Kristján Ómar Björnsson og er hann boðinn velkominn til starfa.
KKÍ hefur birt 16 manna úrtak í U16 og U18 karla og kvenna. Haukar eiga þrjá fulltrúa í þessum hópi. Það eru þau Ágúst Goði Kjartansson(U16), Dagbjört Gyða Hálfdanardóttir(U16) og Embla Ósk Sigurðardóttir(U16). Við í Haukum erum mjög stolt af þeim og óskum þeim góðu gengi á landsliðsæfingunun í mars.
Aðalfundur körfuknattleiksdeildar Hauka verður haldinn fimmtudaginn 27. febrúar 2020 kl. 20:00 á annarri hæð Íþróttamiðstöðvarinnar. Dagskrá fundarins samkvæmt lögum félagsins. Stjórn kkd. Hauka
Markaðsstofa Hafnarfjarðar veitti nýlega viðurkenningar til aðila sem lyft hafa bæjarandanum og bætt hafnfirskt samfélag. Þeirra á meðal var formaður Handknattleiksdeildar Hauka til áratuga, Þorgeir Haraldsson, og Sveinn Sigurbergsson hjá Fjarðarkaupum. Voru þeir vel að þessum heiðri komnir. – Til hamingju!
Aðalfundur Handknattleiksdeildar Hauka verður haldinn þriðjudaginn 25. febrúar kl. 20:00 á 2. hæð. Dagskrá fundarins samkv. lögum félagsins. Stjórnin
Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum hinn mikli veðurhamur sem gengið hefur yfir landið undanfarinn sólarhring. Oft er hér á Ásvöllum vindasamt og engin undantekning var á því nú í morgunsárið. Við erum hins vegar ánægð með að tjón á munum og mannvirkjum er ekki sjáanlegt utan þess að einn kúpull fauk af…
Aðalfundur Skákdeildar Hauka verður haldinn miðvikudaginn 19. febrúar kl. 18:00 í Guðsveinsstofu. Dagskrá samkvæmt lögum félagsins. Félagar eru hvattir til að mæta! Stjórnin.
Óliver Steinar Guðmundsson æfði í vikunni með U16 ára landsliði Íslands í knattspyrnu. Óliver er fæddur árið 2004 og er leikmaður í 3. flokki karla en hann er miðjumaður og skoraði 27 mörk í 16 leikjum á Íslandsmótinu í fyrra. Óliver á að baki tvo leiki með U15 ára landsliði Íslands. Vel gert Óliver!
Haukar bjóða upp á fótboltanámskeið fyrir krakka í 1.-4. bekk dagana 20. og 21. febrúar frá kl. 9-12. Námskeiðið fer fram á gervigrasinu á Ásvöllum (mæting í vallarhúsið). Þjálfarar frá Haukum kenna á námskeiðinu ásamt leikmönnum meistaraflokka. Áhersla er á fótbolta sem leik. Þátttakendur þurfa að hafa með sér hollt nesti og vera klæddir eftir…
Regielly Halldórsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Hauka sem gildir til næstu tveggja ára. Regielly, eða Leli eins og hún er jafnan kölluð, gekk til liðs við Hauka árið 2018 og hefur hún leikið 30 leiki með meistaraflokki og skorað níu mörk. Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar nýjum samningi við Leli og bindur miklar…