Tilkynning frá Öldungaráði Hauka
Spilakvöldinu sem halda átti 24. mars er frestað. Nánar tilkynnt síðar.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Spilakvöldinu sem halda átti 24. mars er frestað. Nánar tilkynnt síðar.
Nú þegar æfingar eru í hléi hjá yngri flokkum þá hvetjum við alla til að æfa sig á hverjum degi. Endilega notið #haukarextra og setjið myndir af duglegum Haukaiðkendum á samfélagsmiðla. Hér er búið að taka saman safn æfinga og fræðslu sem krakkarnir ættu að geta nýtt sér, þarna er einnig að finna skema tl þess að…
Í ljósi aðstæðna hefur verið ákveðið að fresta getraunastarfseminni til 3. apríl. Nánar tilkynnt síðar.
Kæra Haukafólk. Samkvæmt tilmælum frá ÍSÍ verður gert hlé á æfingum grunn- og leikskólabarna til mánudagsins 23.mars. Haukar munu fylgja þessum tilmælum sem byggja á mati landlæknis, sóttvarnalæknis og almannavarna ríkislögreglustjóra. Þjálfarar og starfsfólk félagsins munu vinna að því að skipuleggja næstu viku með þeim hætti að æfingar geti hafist aftur að uppfylltum þeim skilyrðum…
Kæra Haukafólk. Eftirfarandi upplýsingar voru að berast frá íþrótta- og tómstundafulltrúa: ,,Í ljósi þess að endurskipuleggja þarf alla verkferla með tilliti til nýrra krafna um sóttvarnir og öryggi gesta og starfsmanna þá verður öllum sundstöðum og íþróttamannvirkjum á höfuðborgarsvæðinu lokað á mánudaginn 16. mars. Ætlast er til að þeir sem starfi í sundlaugum og…
Allar æfingar á vegum Knattspyrnufélagsins Hauka verða felldar niður um helgina. Með vísan til stöðunnar í samfélaginu og yfirlýsinga frá yfirvöldum vegna ráðstafana gegn Kórónuveirunni hefur verið ákveðið að fella niður allar æfingar hjá félaginu nú um helgina. Frekari upplýsingar um íþróttastarf á vegum Hauka verður kynnt eftir samráðsfund á mánudaginn. F.h. Knattspyrnufélagsins Hauka Samúel…
Ágætu foreldrar / forráðamenn Í ljósi þess að nú er hættustig almannavarna í gildi vegna COVID-19 kórónaveirunnar áréttar almannavarnadeild ríkislögreglustjóra mikilvægi þess að allir fylgi leiðbeiningum sóttvarnarlæknis. Nýjustu upplýsingar eru ávallt að finna á vef Landlæknisembættisins: www.landlaeknir.is Foreldrar eru beðnir um að fylgjast reglulega með nýjustu upplýsingum um þau svæði sem skilgreind eru sem…
Ari Gunnarsson hefur verið ráðinn þjálfari mfl. kvenna og mun hann stýra liðinu út leiktíðina og verður fyrsti leikurinn undir hans stjórn í kvöld er mfl. kvenna heimsækir Breiðablik. „Við erum mjög ánægð að fá Ara til starfa hjá Haukum. Meistaraflokkur kvenna er í harðri baráttu að komast í úrslitakeppnina og bindum við miklar vonir…
4. fl karla í handbolta tryggði sér sæti í bikarúrslitum í vikunni eftir sigur á Selfoss. Úrslitaleikurinn fer fram í Laugardalshöllinni á sunnudag og byrjar kl. 16:00 en mótherjinn er ÍR. Það er því um að gera fyrir Haukafólk að fjölmenna og sjá þessa framtíðarleikmenn Hauka og styðja þá í baráttunni um titilinn. Áfram Haukar!
Þeir Arnar Númi Gíslason og Óliver Steinar Guðmundsson hafa verið valdir til að taka þátt í úrtaksæfingum U16 landsliðsins. Æfingarnar fara fram í Skessunni þann 9.-11. mars næstkomandi. Davíð Snorri er þjálfari U16 ára landsliðsins. Arnar Númi og Óliver Steinar, fæddir árið 2004 skrifuðu báðir nýverið undir samning við Hauka sem gildir út keppnistímabilið 2022….