Srdjan Rajkovic ráðinn inn sem markmannsþjálfari karlaliðsins. Andri Páll og Arnór Gauti koma inn sem sjúkra- og styrktarþjálfarar meistaraflokka félagsins.
Haukar hafa bætt starfsliðið sitt töluvert fyrir komandi sumar. Srdjan Rajkovic og knattspyrnudeild Hauka hafa gert með sér samning þess efnis að Rajko verði markmannsþjálfari meistaraflokks karla og hefur hann nú þegar hafið störf. Rajko er 44 ára og hefur spilað hér á Íslandi síðan 1999 spilað 337 leiki með liðum eins og Fjarðabyggð, Þór…
