Hildigunnur endurnýjar samning við knattspyrnudeild Hauka
Hildigunnur Ólafsdóttir hefur endurnýjað samning sinn við knattspyrnudeild Hauka og gildir nýr samningur til 31. desember 2019. Hildigunnur er 24 ára gömul og á að baki 83 leiki með meistaraflokki kvenna og hefur skorað 29 mörk. Hún lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki árið 2012 og er ein af reynslumeiri leikmönnum liðsins. „Hildigunnur hefur verið…
