Stórleikur í Maltbikarnum hjá stelpunum í dag, sunnudag.

 

Mfl. kvenna í körfu mætir Breiðablik í Smáranum í dag kl. 16:00 í 16 liða úrslitium Maltbikars KKÍ.

Sömu lið mættust fyrir um hálfum mánuði í Smáranum þar sem Breiðablik vann öruggan sigur en ljóst er að Haukastelpurnar munu mæta mun betur stemmdar í þennan leik. Haukaliðið tapaði síðasta leik sínum í deildinni á útivelli á móti Skallagrím í hörku leik þar sem úrsltin réðust á síðustu sek. leiksins.
Liðið hefur spilað án Dýrfinnu í síðustu leikjum en hún hefur verið frá vegna bakmeiðsla, en hún kemur aftur inní liðið fyrir þennan leik og ljóst að það mun styrkja Haukaliðið gríðarlega.

Gríðarlega mikilvægur leikur hjá stelpunum og við hvetjum Haukafólk til að gera sér ferð í Kópavoginn og hvetja stelpurnar til sigurs.

Leikurinn hefst kl. 16:00 í Smáranum, Kópavogi.