Andlátsfrétt


Látinn er eftir erfið veikindi  okkar góði félagi  Árni Yngvi Hermannsson, 58 ára að aldri. Árni var virkur félagi í Haukum frá unga aldri, sonur Hermanns Þórðarsonar sem var forystumaður og formaður félagsins um margra ára skeið. Árni var afreksmaður bæði í knattspyrnu og handknattleik. Hans vettvangur var þó aðallega í handboltanum  þar sem hann lék og starfaði um áratuga skeið. Síðustu árin hafði hann á hendi öll erlend samskipti handknattleiksdeildar.

Félagið þakkar góð störf í þess þágu og sendir fjölskyldu  Árna innilegar samúðarkveðjur.