Maltbikar karla í kvöld kl. 19:15. Njarðvík B – Haukar

Mfl. karla fer til Njarðvíkur í 16 liða úrslitum Maltbikars karla í kvöld, sunnudaginn 29. október, og hefst leikurinn kl. 19:15

B lið Njarðvíkur sigraði Skallagrím í 32 liða úrslitum og munu væntanlega koma fílefldir til leiks og vilja sýna að öll reynslan sem býr í því liði geti fleitt þeim langt.

Haukar þurfa að koma einbeittir til leiks og hefja leikinn af krafti og tryggja sig í 8 liða úrslit.