Flugfélags Íslands Deildarbikarinn 2010

Milli jóla og nýárs mun fara fram keppni um Deildarbikar HSÍ en sú keppni hefur verið haldin á þessum tíma undanfarin 3 ár. Í ár líkt og í fyrra ber keppnin heitið Flugfélags Íslands Deildarbikarinn.

4 efstu lið í N1 deildum karla og kvenna fara í keppnina og er miðað við stöðu liðanna eftir seinustu umferð fyrir jól þar sem allir hafa leikið jafn marga í leiki.

Í karlaflokki eru það Akureyri, Fram, FH og Haukar og í kvennaflokki er það Fram, Stjarnan, Valur og Fylkir.

Leikið verður í Íþróttahúsinu Strandgötu í Hafnarfirði.

Miðaverð er 1.000 kr fyrir hvorn dag, fyrir 16 ára eldri, en frítt inn fyrir 15 ára og yngri. Aðgöngukort HSÍ, A og B, gilda á leikina en ekki C kortin.

Allir leikir mótsins verða sýndir beint á www.sporttv.is.

Leikjaplanið er eftirfarandi:

Mánudagur 27.desember 2010

 

Stjarnan – Valur

kl.16.00

Undanúrslit

Fram – Fylkir

kl.17.45

Undanúrslit

Fram – FH

kl.19.30

Undanúrslit

Akureyri – Haukar

kl.21.15

Undanúrslit

     

Þriðjudagur 28.desember 2010

 

Deildarbikar ka

kl.18.15

Úrslit

Deildarbikar kvk

kl.20.00

Úrslit