Spennan magnast í getraununum.

Það voru miklir keppnismenn sem mættu í dag á annan dag jóla til að tippa. Erfitt reyndist það þó sumum að rífa sig út frá jólaátinu og kemur það til með að hafa áhrif nú í lokabaráttunni. Keppni í riðlakeppninni er lokið og efstu liðin úr riðlum verið skipt í Úrvalsdeild A og B deild og síðan fara hin liðin í keppni um framrúðubikarinn sem einnig er skipt í A og B deild. Stöðuna má sjá annars staðar hér á heimasíðunni. Að lokum minnum við alla á að næst verður tippað 1 janúar milli kl 11 og 14.

 

Kveðja frá Hauka-getraunum.