Emil og Haukur í landsliðshóp 20 ára og yngri

Emil Barja

Emil Barja og Haukur Óskarsson voru í gær valdir í landsliðshóp 20 ára og yngri í körfu en markmiðið með þessum hóp eins og greint er frá á heimasíðu KKÍ að skapa tækifæri fyrir alla bestu leikmennina undir 20 ára en ekki að halda sig eingöngu við elsta aldursárið þannig er t.d. valið í þennan fyrsta æfingahóp drengir fæddir 1991-1994.

Emil og Haukur eru þegar orðnir mjög mikilvægir leikmenn í meistaraflokksliði karla og hefur verið mjög ánægjulegt að sjá að þeir eru farnir nú undir lok ársins að axla enn meiri ábyrgð á leik meistaraflokksliðs Hauka sem nú er í 6. – 7.sæti eftir góða sigra í þessum mánuði.

Heimasíðan óskar þeim góðs gengis á landsliðsæfingum á milli jóla og nýárs!

Karfan í Haukum á nú 10 leikmenn í yngri landsliðshópum karla og kvenna 5 stráka og 5 stelpur sem verða við landsliðsæfingar um jólin og óskar heimasíðan þeim öllum góðs gengis á æfingum!

Haukur Óskars

Emil og Haukur í landsliðshóp 20 ára og yngri

Emil BarjaHaukur Óskars