FH – Haukar í Krikanum á morgun

Árni Steinn hefur farið vel af stað í Olísdeildinni og skorað grimmt. Mynd: fimmeinn.isÁ sunnudaginn léku strákarnir sinn fyrsta heimaleik þegar lið Akureyrar mætti í heimsókn. Okkar menn áttu í erfiðleikum að finna taktinn í fyrri hálfleik en allt annað var að sjá til þeirra í þeim síðari. Matthías Árni kom með baráttuna í vörnina og þá fylgdi sóknin með. Lokatölur voru 24 – 23. 

Annað kvöld er svo fyrsti Hafnarfjarðarslagurinn í Olísdeild karla þetta árið þegar Haukapiltar sækja nágranna sína í FH heim og hefst leikurinn kl. 19:30. Liðin áttust við í úrslitaleik Hafnarfjarðarmótsins í lok ágúst og þá höfðu Haukar betur en það er ljóst að þetta eru tvö jöfn lið og getur stuðningur áhorfenda gert gæfumuninn. Mætum öll í rauðu annað kvöld í Krikann og styðjum okkar menn til sigurs.

Áfram Haukar!