Haukar með tvo fulltrúa í undanúrslitum Lengjubikarsins

Hjálmar og Sylvía hafa verið spræk í Lengjubikarnum - Ljósmynd: Axel Finnur GylfasonKKÍ tilkynnti í morgun viðureignirnar í undanúrslitum Lengjubikarsins sem fara fram á morgun (fimmtudag) og á föstudaginn í Ásgarði í Garðabæ.

Haukar eiga einir liða fulltrúa í undanúrslitum beggja kynja.

Meistaraflokkur kvenna mætir Keflavík á morgun kl. 20:30.

Meistaraflokkur karla mætir síðan KR á föstudaginn kl. 20:30.

Mætum í Ásgarðinn og styðjum okkar lið áfram til sigurs og vonumst eftir tvíhöfða okkar liða á Laugardaginn í úrslitaleikjunum.

Fréttatilkynning KKÍ