Uncategorized

  • Gleðilega páskahátíð

    Páskahátíðin er gengin í garð og við fögnum því að eiga notalegar stundir með fjölskyldu og vinum. Um páska gefst okkur einnig tækifæri til að njóta margvíslegra viðburða. Úrslitaviðureignir í körfubolta og handbolta eru framundan, uppskeruhátíð íþróttamanna og íþróttaunnenda, þar sem allt er lagt í sölurnar til að ná góðum úrslitum. Þá er knattspyrnuvertíðin handan…

  • Afmæliskaffi, opið hús

    Miðvikudagnn 12. apríl fagna Haukar 92 ára afmæli sínu. Af því tilefni verður OPIÐ HÚS í Samkomusalnum frá kl 16 til 18 þar sem boðið er upp á léttar veitingar. Félagar og velunnarar félagsins eru hvattir til að koma og eiga saman góða stund. Aðalstjórn Hauka

  • Skák fyrir byrjendur

    Skákdeild Hauka hefur aftur barnastarf fyrir byrjendur á grunnskólaaldri, þriðjudaginn 4. apríl nk. Kennslan fer fram í apríl og maí og hefst svo aftur í haust. Miðað er við að nemendur kunni mannganginn. Kenndar verða byrjanir, endatöfl og taktík fyrir byrjendur. Kennt verður í Íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum á þriðjudögum á milli kl. 17:00 og…

  • Næstu leikir handboltans!

    Það eru mikið um að vera þessa dagana og ekki nema 2 dagar í næsta leik hjá stelpunum og 4 dagar hjá strákunum. Allt hörkurimmur og gríðarlega mikilvæg stig í pottinum fyrir okkar lið. Við vonumst að sjálfsögðu til að sjá fullt af Haukafólki, iðkendum og foreldrum á Ásvöllum næstu daga!

  • Það var dúndur stuð á Þorrablóti

    Það var dúndur stuð á Þorrablóti Hafnarfjarðar sem haldið var á Ásvöllum sl. laugardag. Vörpulegir víkingar tóku á móti veislugestum og Auddi og Steindi sáum svo um veislustjórn og kveiktu svo sannarlega upp í salnum. Íþróttasal sem strákarnir hjá HljóðX voru búnir að breyta í afar glæsilegan veislusal. Skemmtikraftarnir voru heldur ekki af verri endanum,…

  • Leikjaskóli barnanna – tími fellur niður laugardaginn 21. janúar 2023.

    Við verðum því miður að tilkynna að Leikjaskóli barnanna fellur niður af óviðráðanlegum ástæðum næstkomandi laugardag, 21. janúar kl. 09:00. Næsti tími í Leikjaskólanum verður því þann 28. janúar kl. 09:00. Við hörmum að þurfa að gera þessar breytingar, en munum bæta við tíma í Leikjaskólanum í vor. Með bestu kveðju, starfsfólk Leikjaskólans.

  • Þrettándagleði á Ásvöllum

    Það ríkti gleði í augum barnanna sem mættu á Ásvelli í gær á Þrettándagleði þar sem jólin voru kvödd. Söngur, glens og gaman og jólasveinn og púkar léku við hvern sinn fingur á þessum síðasta degi jóla. Þá var í boði rjúkandi heitt súkkulaði og sérbakaðar kleinur að ógleymdum stjörnuljósum í tilefni dagsins. Margt var…

  • Þrettándagleði á Ásvöllum

    Jólin verða kvödd með dansi og söng á glæsilegri Þrettándagleði á Ásvöllum föstudaginn 6. janúar. Hátíðin hefst kl. 18. Guðrún Árný stjórnar söng og dansi af sviði. Kertasníkir, Grýla, álfar og púkar verða á sveimi á svæðinu. Í afgreiðslu verður hægt að kaupa kakó, kleinur og stjörnuljós.  Hátíðinni lýkur um kl. 18:45 með glæsilegri flugeldasýningu…

  • Vinningsmiðar í happdrætti kkd. Hauka

    Búið er að draga í happdrætti kkd. Hauka. Hægt er að nálgast upplýsingar um vinningsmiðana með því að smella á fyrirsögnina. Mánudaginn 9. janúar frá 16:00-18:00 verður hægt að nálgast vinninga á skrifstofu körfuknattleiksdeildarinnar í íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum. Nr. Vinningur  Verðmæti Vinningsnúmer 1 Cube Nature Allroad 2022 hjól frá TRI        127.990 25 2 Gjafabréf…

  • Viðurkenningarhátíð Hauka á Gamlársdag 2022.

      Elín Klara Þorkelsdóttir var valin íþróttakona Hauka, Heimir Óli Heimisson var valinn iþóttamaður Hauka og Kristján Ó. Davíðsson var valinn þjálfari Hauka. Hér eru nokkrar myndir frá viðurkenningarhátíðinni. Tjörvi Þorgeirsson tók við viðurkenningunni fyrir hönd Heimis Óla sem ekki hafði tök á að mæta. Hér fylgir einnig ávarp formanns Hauka, Magnúsar Gunnarssonar. Kæru vinir,…